Benutzer:BurningKestrel/Ingi Bauer
Ingi Þór Garðarsson (f.10. júní 1992), sem er betur þekktur undir listamannsnafninu sínu Ingi Bauer, er íslenskur tónlistarmaður, plötusnúður og stofnandi YouTube rásarinnar Ice Cold.
Æviágrip
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Ingi Bauer er fæddur og uppalinn í Hafnarfirðinum. Á sínum yngri árum fór hann í Setbergsskóla þar sem helstu áhugamál hans voru flugvélar og leiklist. Ingi Bauer ákvað svo að fara í Flensborgarskólann þar sem hann kynntist besta vini sínum. Þeir ákváðu að stofna YouTube rásina Ice Cold. Ingi byrjaði svo að gefa út tónlist á SoundCloud og fékk yfir 2 milljónir spilana þar áður en hann færði sig yfir í íslenskan markað.
Meðal þekktustu laga hans er lagið „Upp Til Hópa“ sem hann gaf út með rapparanum Herra Hnetusmjör, en það lag var bæði tilnefnt sem lag ársins á Hlustendaverðlaunum FM957 og Íslensku Tónlistarverðlaunum árið 2019.[1] Á síðustu árum hefur hann gefið út tvær breiðskífur ásamt því að gefa út lög reglulega, en platan hans Bau Air var tilnefnd sem plata ársins 2022 á Hlustendaverðlaunum FM957.[2]
Ice Cold
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Upphaf
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Árið 2011 stofnaði Ingi Bauer YouTube rásina Ice Cold ásamt vini sínum Stefáni Atla.[3] Fyrstu árin einblíndu þeir á að búa til stuttmyndir með húmor og miklum hasar. Fyrsta stuttmynd þeirra Eiturlyf var tilnefnd til verðlauna og síðar gáfu þeir út mikið magn af stuttmyndum. Í kringum 2013 ákváðu þeir félagar að reyna fyrir sér í tónlistinni með því að gera ábreiður af vinsælum erlendum lögum með íslenskum texta. Helst ber að nefna lagið „Bagg & Cod“ sem naut mikilla vinsælda á þeim tíma.
Vlog
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Þegar Ingi og Stefán voru að keyra upp í studio til Inga Bauer ákvað Stefán að ná í símann sinn og taka upp byrjunina á fyrsta vloggi Ice Cold. Eftir það var ekki aftur snúið hjá þeim félögum þar sem þeir bjuggu til í heildina yfir 70 vlogs. Lítið var um að Íslendingar væru að vlogga á þessum tíma og sáu þeir félagar að þetta væri eitthvað sem vantaði. Vloggin þeirra sýndu allt frá því hvernig þeir stofnuðu fyrirtæki yfir í að hanga með þekktum leikurum og tónlistarmönnum.[4]
Streymi
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Þegar tölvuleikurinn Fortnite kom út ákváðu þeir að byrja að streyma í beinni útsendingu frá því þegar þeir spiluðu leikinn. Þeir fengu til sín góða gesti eins og Pétur Jóhann og Steinda Jr. Eftir það urðu þeir stærstu tölvuleikjastreymendur á Íslandi fyrir íslenskan markað.[5]
Endalok
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Árið 2021 ákváðu Ingi og Stefán að hætta með Ice Cold rásina og einbeita sér að sínum eigin frama.
Útgefið efni
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Breiðskífur
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Stuttskífur
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]- 2022 - Menntaskóla Ást <3
Smáskífur
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]- 2018 - „Spurðu Um Mig“ (Ingi Bauer Remix)
- 2018 - „Upp Til Hópa“ (ásamt Herra Hnetusmjör)
- 2019 - „Ísbíllinn“ (ásamt Ezekiel Car)
- 2019 - „Taka Meira Út“ (ásamt Birgi Hákon)
- 2019 - „Dicks“ (ásamt Séra Bjössa)
- 2019 - „Stjörnur“ (ásamt Chase Anthony og Páli Óskari)
- 2019 - „Áttavilltur“ (ásamt Ezekiel Carl og Chase Anthony)
- 2019 - „Moshpit“ (ásamt Show-Menn)
- 2019 - „Sleðalestin“ (ásamt Luigi)
- 2020 - „Djamm Í Kvöld“ (ásamt Steindanum okkar, Ásgeiri Orra, SZK o.fl.)
- 2020 - „Undir Mistilteini“ (ásamt Agli Ploder & Svölu)
- 2020 - „Faðir Vor“ (ásamt Séra Bjössa)
- 2021 - „Til Baka“
- 2021 - „Rangur Maður“
- 2021 - „Veiðimaður“ (ásamt THØR & Bjørn)
- 2021 - „Ólíkar Týpur“ (ásamt Reyni)
- 2021 - „Gústi Jr.“ (ásamt Gústa B)
- 2021 - „Sick Áramót“
- 2022 - „Hvar ert þú?“ (ásamt SviMA)
- 2022 - „Í Larí Lei“ (ásamt THØR)
- 2023 - „OFBOÐSLEGA FRÆGUR“ (ásamt VÆB)
- 2023 - „Ein Í Nótt“ (ásamt Svölu)
- 2023 - „Helgi Björns“ (ásamt Helga Björns)
Lagasmíði og upptökustjórn
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]Ár | Lag | Flytjandi | Plata |
---|---|---|---|
2015 | „Jámarh“ | Herra Hnetusmjör & Joe Frazier | Flottur Skrákur |
„Fáum Borgað“ | |||
2016 | „If I Was King“ | Rossy | |
„Vinir“ | Áttan | ||
2017 | „NEINEI“ | Áttan | |
„Ekki Seena“ | Áttan | ||
„Áhrifin“ | Áttan | ||
„Því Ég Get Það“ | Áttan | ||
2018 | „L8“ | Áttan | |
„Meira“ | SviMA | ||
2019 | „Moldaður“ | 12:00 | |
2020 | „Ómægad“ | Luigi | Breyttir Tímar [8] |
„Akureyri“ | Luigi & Herra Hnetusmjör | ||
„Samstarf“ | Luigi & Joe Frazier | ||
2021 | „Ég Er Ekki Fullur“ | SviMA | |
2022 | „Hvar Ert Þú?“ | SviMA |
Tilvísanir
[Bearbeiten | Quelltext bearbeiten]{{f|1992}} [[Flokkur:Íslenskir tónlistarmenn]]
- ↑ VERÐLAUNAHAFAR. In: Íslensku tónlistarverðlaunin. Abgerufen am 28. Januar 2023.
- ↑ Sylvía Rut Sigfúsdóttir: Þessi hlutu Hlustendaverðlaunin í ár - Vísir. In: visir.is. 19. März 2022, abgerufen am 8. Juli 2023 (isländisch).
- ↑ Ice Cold: „Við erum aldrei að feika neitt“. In: www.mbl.is. 6. Juli 2019, abgerufen am 28. Januar 2023 (isländisch).
- ↑ Stefán Árni Pálsson: Svona varð smellurinn NEINEI til - Vísir. In: visir.is. 3. Juni 2017, abgerufen am 28. Januar 2023 (isländisch).
- ↑ Andri Eysteinsson: Steindi spilaði loksins Fortnite með Ice Cold - Vísir. In: visir.is. 17. Juni 2019, abgerufen am 28. Januar 2023 (isländisch).
- ↑ Tinni Sveinsson: Kosning fyrir Hlustendaverðlaunin 2022 hafin - Vísir. In: visir.is. 18. Januar 2022, abgerufen am 28. Januar 2023 (isländisch).
- ↑ Rósa Margrét Tryggvadóttir: Gerir upp sambandið við fyrrverandi: „Uppgjör fyrir okkur bæði“. In: K100. 3. November 2022, abgerufen am 28. Januar 2023 (isländisch).
- ↑ breyttir tímar. In: KALT. Abgerufen am 28. Januar 2023 (amerikanisches Englisch).